PCOS
Polycystic Ovarian Syndrome eða Fjölblöðru eggjastokka heilkenni.
Ýmislegt felst í því að vera með Pco .. ýmis aukaverkanir einsog að fitna en konur með pcos eiga ekki auðvelt með að grennast alveg sama hvað þær gera.. einnig er vart við aukin hárvöxt en það er als ekki gaman að vera kvennmaður og með skegg en verstu tilfellin geta verið þannig að konan er alveg skeggjuð og þarf að raka sig daglega .. kanski voru þessar skrítnu skeggjuðu konur sem voru í sirkusum í gamladaga bara með Pco hver veit..
Konur með Pco eiga oft ervitt með að geta barn og þurfa því að nýta læknavísindin í það . og búa þessvegna til Tæknileg börn ; )
Það hefur hjálpað sumum konum að taka sykursíkis lyfið
Glucophage
ef þig grunar að þú sért Pco gella endilega hafðu orð á því við doksan þinn og ef hann staðfestir grun þinn spurðu þá útí Gluco, ég trúi að bætt líðan mín sé mykið Gluco að þakka þó ég hafi nú ekki lést mykið síðan ég byrjaði að taka það ..
en ég hef núna 24 maí 2005 verið á því í rúmt ár og sé mun í dag en það getur tekið tíma að fá virkni frá lyfinu.
Ekki allir læknar seigja frá því að þú sért með Pco þó það sé skráð í skíslur þínar .. þannig að ef þig grunar einhvað endilega spurðu .. Netið er góður fræði banki og konur með pco kannast við margt þegar þær fara að lesa um pco á netinu..
Í gegnum árin hef ég lesið mykið um Pco á mörgum stöðum hef ég rekist á að Atkins kúrin hafi hjálpað örgum að léttast .. ég persónulega er ekki hrifin af þeirri hugmynd en þetta hentar kanski einhverjum .. ég aftur á móti sé mun á mér við að fara á blóðflokka mataræði en það þarf mykla eldamensku og skipulag þegar maður fer í það .. tala nú ekki um þarsem ég er í blóðflokk O neg og þarafleiðandi er brauð bannað og kjög vel vel leifilegt, en svínakjöt er þó talið óæskilegt .
Ég er með lista á tölvutæku formi fyrir hvað hver blóðflokkur á að forðast og hvað er holt ef þig langar að skoða þetta þá get ég vel sent þetta til þín.. sendu mér bara netta línu. ;)
Þetta er grein um Pco sem ég fann á netinu .. mæli alveg með þessari lesningu fyrir alla .. bæði þá sem eru með pco og þá sem eru ekki með það ..
Þessi grein er bara ein aðferð til að hjálpa til við það að skylja þá sem eru með þennan sjúkdóm og eins ef þið kannist við ykkur sjálf í þessari grein að þá getiði leitað hjálpar hjá kvennsjúkdóma doksa...
PCO - Poly Cystisk Ovarie/Eggjastokkar með blöðrum
PCOS - Poly cystik Ovarie Syndrome/Fjölblöðrueggjastokka heilkenni
Hvað er PCO?
PCO er í raun margir hlutir. Þegar fyrst var farið að tala um tilstandið árið 1935, var því lýst þannig að það snérist um of þungar konur með yfirvaraskegg, sem hefðu ekki blæðingar. Síðan hefur lýsingin á tilstandinu sem betur fer breyst, en á mörgum stöðum er samt sem áður erfitt að fá greiningu, ef maður hefur ekki algengustu einkennin. En PCO sýnir sig á jafn marga vegu og það eru til konur sem búið er að greina með PCO.
PCO getur verið til staðar í mörg ár án þess að maður viti það, og á ákveðnum tímapunkti fara einkennin að smám saman koma í ljós. Einkennin geta sömuleiðis breyst í gegnum árin. Hjá sumum geta einkennin komið fyrst í ljós um 14 ára aldurinn.
Það þýðir þó ekki að maður geti ekki:
Norðurameríska skilgreiningin er aðeins öðruvísi, hún krefst aðeins:
Það er nokkuð ljóst að hér er ekki um sömu hópa að ræða og í Evrópu, og það er einmitt hér sem vandamálið er, þegar gera skal samanburð á vísindalegum rannsóknum, eða bara að lesa um PCOS. Til dæmis sýnir það sig í einföldum samanburði á fjölda kvenna með PCOS: Evrópska skilgreiningin segir frá, eins og áður er nefnt, að 15% af öllum konum sé með PCOS, þar sem fjöldinn samkvæmt norðuramerísku skilgreiningunni er niðri í 4 - 8%.
HVAÐ HEFUR OFÞYNGD MEÐ PCO AÐ GERA?
Það eru ekki allir með PCOS of þungir. Reyndar eru meira en 20% allra með PCOS grannir eða í kjörþyngd. Það er þó viðurkennt, að ef maður er með PCOS, eigi maður auðveldara með að þyngast, og verði maður áfram of þungur, getur það orðið til þess að fleiri einkenni fara að koma í ljós, sem tengjast tilstandinu. Þannig er það oft, að þegar konur með PCO sem hreyfa sig mikið, leggja íþróttir á hilluna og þyngjast, - þá fara einkenni PCOS að koma fram. Ef maður er of þungur og hreyfir sig lítið, getur það einnig í sjálfu sér kallað fram insúlínþol - jafnvel þó maður hafi ekki PCO. Það er vegna þess að út frá fituvefjum skilst efni (TNF = Tumor necrosis factor) sem hemur insúlínþolið í vöðvafrumunum. Og því meiri fita, því meira insúlínþol.
Insúlínþol eins og ég orða það vegna skorts á betra heiti, þýðir að maður er með skert þol fyrir insúlíni, þ.e.a.s. maður er ekki eins móttækilegur fyrir insúlíni. Blóðsykurinn myndast að mestu af þeim kolvetnum sem við borðum en kemur einnig frá lifrinni þegar insúlínið hækkar.
Við notkun vöðvanna, þ.e. við hreyfingu, skilst út efni (IL = interleukin-6), sem hefur örvandi áhrif á insúlínþolið. Það er þetta efni sem vantar ef maður notar vöðvana lítið, þ.e. stundar litla hreyfingu. Það þýðir einnig, að maður getur líka haft insúlínþol, ef maður er grannur og hreyfir sig ekki, og maður getur varið sig gegn insúlínþoli ef maður er of þungur en stundar samt mikla hreyfingu. Ef maður er of þungur breytir maður þar að auki fleiri androgenum í östrogen í fituvefnum. Og því meiri fituvef sem maður hefur, því fleiri androgen breytast í östrogen, og því meiri truflun verður á hormónajafnvæginu - (LH/FSH-væginu).
Ástæðan fyrir að maður sem PCO-þolandi hefur auknar líkur á ofþyngd er vegna ýmissa þátta:
Hið aukna androgen magn örvar sérstaklega þann fituvef sem liggur í neðri maga á milli þarmanna til aukinnar fitusöfnunnar. Þess vegna hið aukna mjaðma-/mittisummál, þ.e.a.s. epla lagið. Þetta skýrir líka, hvers vegna konum í kjörþyngd
AFLEIÐINGAR PCO:
Að vera með PCO og insúlínþol getur haft afleiðingar þegar til lengri tíma er litið, sem gott er að hafa í huga:
Hið aukna östrogenmagn getur, í krafti aukinnar örvunnar slímhimnunnar í móðurlífinu, ásamt lítilli truflun frá tíðahringnum - þ.e. vegna þess að blæðingar eru sjaldgæfar, aukið hættu á krabbameini í móðurlífinu. Líði langur tími á milli blæðinga, eða ef blæðingar hafa hætt, er þess vegna mikilvægt að fá hormónameðferð, sem tryggir örvun slímhimnunnar. Hið minnkaða næmi fyrir insúlíni, hið títt aukna vægi blóðsykurs (jafnvel þó það sé aðeins lítil hækkun í hvert skipti), og hin aukna insúlínframleiðsla, getur þegar til lengri tíma er litið aukið hættuna á sykursýki 2 - einnig hjá þeim sem eru í kjörþyngd. Við ofþyngd losar fituvefurinn út fituefni eins og kólestról í blóðið. Þessi fituefni geta hlaðist upp á æðarveggjunum og valdið háum blóðþrýstingi og aukið hættu á hjartasjúkdómum
MEÐFERÐ:
GÓÐ RÁÐ VARÐANDI MATARÆÐI FYRIR ÞIG MEÐ PCO:
Út með:
Inn með:
GAGNLEGT LESEFNI:
Cytokiner i intern medicin - relation til insulinresistens og motion
Eftir: Professor Dr. med. Bente Klarlund Pedersen, Epidemiklinikken á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn, gefið út á netinu.
The role of lifestyle modification in polycistic ovary syndrome - Review.
Eftir: Robert J. Normann, Michael J. Davies, Jonathan Lord and Lisa J. Moran. Elsevier Science Ltd. Vol. 13 No. 6 August 2002
What is polycistic ovary syndrome? Are national views important? - Debate.
Eftir: Adam Balen and Kathy Michelmore. Human Reproduction Vol.17, No.9 pp.2219-2227, 2002.
Should patients with polycystic ovarian syndrome be treated with metformin? Proven and potential benefits - Debate-continued.
Eftir: Emre Seli and Antoni J. Duleba. Human Reproduction Vol.17, No.9 pp. 2230-2236, 2002
Meira síðar..........Hanna Sif Hafdal
www.heilsa.hafdal.dk