Saga Chihuahua hundsinns:
Það eru allir sammála um það að Chihuahua tegundin er sú minnsta í heiminum, en það eru hinsvegar ekki allir sammála um uppruna hennar. Goðsögn og saga eru mjög mikilvægir þættir í sögum forfeðra núlifandi Chihuahua hundanna.
Það er hægt að rekja sögu Chihuahua hundsinns aftur að níundu öld. Útskorinn málmur í munkaklaustri í Huejotzingo, gefa sterkar sannanir um uppruna Chihuahua. Munkaklaustrið var reist um árið 1530, úr steinum sem teknir voru úr píramídum í Cholula, af Toltectum. Lítið er vitað um Toltecta en vitað er þó að þeir voru uppi á níundu öld e.k. þar sem við köllum nú Mexico.
Toltectarnir áttu sér hundategund sem þeir kölluðu Techichi. Sannanir hafa fastlega staðfest að Techichi hafi verið á Toltect tímabilinu. Útskornar myndir á steinunum á Huejotzingo klaustrinu sýna myndir af hundi sem eru hér um bil alveg eins og Chihuahua hundurinn sem við þekkjum í dag. Af þessu sönnunargögnum, getum við staðfest án nokkurs vafa að Chihuahua er afkomandi Techichi.
Til viðbótar, eru til sannanir um tilvist smáhunds í leyfunum af píramída byggingunum í Chichen Itza.
Chihuahua hundinum er lýst sem vinsælu gæludýri, sem og trúarlegum nauðsynjum, á meðal fornum Toltect ættbálkum og svo síðar á meðal Aztect ættbálkum. Fornleyfafræðingar hafa uppgötvað leifar af þessari tegund í mannsgröfum í Mexico og á nokkrum stöðum í Ameríku.
Núlifandi Chihuahua hundurinn er nokkuð frábrugðinn fornfeðrum sínum, með litartóna sína frá snjóhvítum að hrafnsvörtum. Mexicanar vilja heldur hrafnsvartann Chihuahua með brúnum rákum, og svart- hvítt doppóttann. Aftur á móti vilja Ameríkanarnir hafa hundinn heillitann.
Nokkrar algengar spurningar um Chihuahua hundinn:
Sp: Hafa Chihuahua hundar gat á hausnum??
Sv: Sumir Chihuahua hundar hafa lítið gat á hausnum, það er kallað molera. Molera var einu sinni mjög algeng á Chihuahua hundum og var meira að segja talin vera staðall þessarar tegundar. Aftur á móti eru ræktendur í dag að reyna að losna við þetta gat. Moæera er miklu algengari hjá Chihuahua hundum sem eru með allt of stórt ennissvæði. Moleran er ekki lífs hættuleg Chihuahua hundum, en gerir hann samt viðkvæmari fyrir veikindum, eins og vatn á heilann ofl.
Sp. Í hvaða litum koma Chihuahua hundar??
Sv: Chihuahua hundar koma í öllum litum. Ljósum, dökkum, heillitum, marglitum ofl.
Sp: Þurfa Chihuahua hundar hreyfingu??
Sv: Chihuahua hundar eru mjög aðlögunarhæfir, en eins og við þá er það einstaklingsbundið. Sumir vilja eins mikla hreyfingu og þú getur gefið þeim, en svo eru aðrir sem geta ekki hugsað sér annað en að sofa í kjöltunni þinni allan daginn. Það er semsagt þitt að dæma!!
Sp: Eru Chihuahua hundar góðir varðhundar??
Sv: Algjörlega, þeir eru kannski ekki mjög stórir, en þeir passa sko sín svæði gegn öllu ókunnugu.
Sp: Eru þeir árásagjarnir??
Sv: Chihuahua hundar geta verið árásargjarnir, en ekki skapvondir. Þeir mundu glaðlega ráðast á Rottweiler alveg eins og þeir mundu líka ráðast á Jack Russel, þeir virðast ekki hafa neinn skilning um stærð. Chihuahua hundar þurfa samt að láta klappa sér, þeir eru nú hundar, en mundu... þú ert stjórinn!!!
Sp: Þurfa þeir mikla snyrtingu??
Sv: Nei, þú þarft ekki að snyrta þá mikið, hvorki snögghærðu eða síðhærðu. Gott burst tvisvar í viku mundi gera mjög gott. Það þarf ekki að fara með þá reglulega til hundasnyrtis í sérstaka feldaklippingu, en það er gott að láta klippa neglurnar þeirra reglulega. Haltu augunum þeirra hreinum, með því að strjúka laust yfir þau með bómulli sem er búið að bleyta í smá saltvatnslausn. Stóru augun þeirra eiga það til að leka og tárin þorna undir augunum þeirra (ekki rugla saman við augnsýkingu).
Sp: Er erfitt að gefa þeim að borða??
Sv: Það er ekki erfitt að gefa Chihuahua hundum að borða, þeir borða næstum því allt. Þeir elska afganga, epli, pasta og næstum allt. Það er skynsamlegt að gefa hundinum þínum blöndu af léttu fóðri og venjulegu fóðri. Ef hann borðar það ekki, þá er hann ekki nógu svangur.
Sp: Hvað er tebolla Chihuahua??
Sv: Þetta et aðalega amerískt hugtak. Tebolla Chihuahua er bara mjög lítill Chihuahua, venjulega undir 1 ½ kg. í þyngd. Þetta er ekki önnur tegund af Chihuahua. Ef ræktandi segir þér að þeir rækti einungis þessa tegund, hugsaðu þig þá tvisvar um. Þetta er örugglega leið til að selja hvolpana dýrari. En mundu, því minni sem Chihuahua hundurinn er, því meiri heilsuvandamál hefur hann.
Sp: Foreldrar hvolpsinns míns eru snögghærðir, en hvolpurinn minn er síðhærður. Hvernig er þetta hægt??
Sv: Þetta fer allt eftir genum. Ef foreldrar hvolpsinns eru snögghærðir en hvolpurinn þinn með síð hár, þá er annað hvort afinn eða amman með síð hár. Þannig að snögghærð mamma getur átt loðna og snögghærða hvolpa, ef amman, langamman eða einhver var með síð hár.
Sp: Af hverju hrýtur Chihuahua hundurinn minn??
Sv: Þetta er algengt tilfelli hjá Chihuahua hundum, það má rekja þetta til stuttu vöðvanna þeirra. Stundum eru hroturnar svo háværar að þær gætu vakið allt húsið, og það er mjög fyndið þegar það er gestur hjá okkur og hann trúir ekki að þessi hræðilegi háfaði komi úr þessum pínulitla hundi!! Chihuahua hundar gefa sundum líka frá sér einskonar hrjótu- hrýni hljóð þegar þeir eru að leika sér eða að rannsaka nýja lykt. Þetta er alveg fullkomlega eðlilegt hjá Chihuahua hundum.
Sp: er súkkulaði hættulegt fyrir hundinn minn??
Sv: Já, súkkulaði er hættulegt fyrir hundinn þinn, og jafnvel stundum banvænt. Hundar verða yfirleitt fyrir þessu, þar sem þeir elska að borða sætindi. Það er líka mikilvægt að muna það að kettir og önnur dýr eru líka viðkvæm fyrir súkkulaði.
Sp: Hvað er það annars sem er svona hættulegt við súkkulaði??
Sv: Súkkulaði er búið til úr ávaxta-baunum af kakó tré. Theobromine, hluti af súkkulaði, er hættulega blandan í súkkulaðinu. (Koffín er líka í súkkulaði, en í miklu minna magni heldur en theobromine).
Sp: Eru sum súkkulaði hættulegri en önnur??
Sv: Já, súkkulaði sem notað er í bakaríi eru með 8-10 sinnum meira magn af theobromine heldur en venjulegt mjólkursúkkulaði. Ekki of sæt súkkulaði eru um það bil á milli bakarasúkkulaðis og mjólkursúkkulaðis. Hvítt súkkulaði er með theobromine, en í svo litlu magni að hættan er ekki mikil.
Sp: Hver eru þá hættueinkennin??
Sv: Einkennin koma yfirleitt í ljós innanvið 12 (eða minna) frá því hundurinn borðaði súkkulaðið.
Spenna/ stress/ ótti
Uppköst/ niðurgangur
Gríðarlegur þorsti/ stundum mjög mikil þvaglosun (aðallega eftir súkkulaði með háu theobromine magni)
Vöðvakrampi
Áfall
Hundurinn leggst í dá (sjaldgæft)
Dauði (sjaldgæft)líklegast hjá hundum með fyrri hjartagalla.
Sp: Hvernig þetta meðhöndlað??
Sv: Ef þig grunar að hundurinn þinn hafi borðað súkkulaði (meira en molinn sem datt á gólfið) skaltu hringja í dýralækninn þinn til að fá góð ráð. Hættan af theobromine fer eftir því hve mikið súkkulaði hundurinn borðaði. Þá er verið að tala um stærð hundsinns, tegund súkkulaðis og magn súkkulaðis sem ákvarða um það ef og hvernig hættuleg það er fyrir hundinn þinn.
Þessar uplísingar um súkkulaði eiga við um suðursúkkulaði og erlent súkkulaði .. þetta góða rjómasúkkulaði sem er hérna á klakanum er ekki með þetta efni að neinu ráði..
Sp: Afhverju er þá súkkulaði ekki hættulegt fyrir mannfólkið??
Sv: Mennirnir geta brotið niður og aðskilið theobromine miklu hraðar og betur en hundar gera. Theobromine getur verið í hundunum í 17,5 klst.
Sp: Af hverju pissar hundurinn minn stundum í búrið sitt??
Sv: Hundar, og flest önnur dýr, pissa yfirleitt ekki í bælin sín..... nema að búrin séu stærri en þeir þurfa. Ef að búr hundsinns er of stórt, þá pissar hann í hornið á svæðinu sem hann er ekki að nota fyrir svefn og leik. Passaðu einnig að fara með hundinn út að pissa áður en þú setur hann í búrið sitt. Ef hundurinn venst því að pissa í búrið sitt, er erfitt að venja hann af því.
Sp: Hversu gamall er hundurinn minn í manna árum??
Sv: 1 ár hjá mönnum eru 7 ár hjá hundum. En best er að finna út hversu lengi hundategund hundsinns þíns lifir. Smáhundar eiga það til að lifa lengur, eða allt að 14- 18 ár, en hundur eins og Stóri danni lifir einungis 8-10 ár. Það er gaman að vita hvað hundurinn þinn er gamall í manna árum en það er einnig hentugt, því þá getur þú fylgst með hundinum og skylið hegðanir hans. Sérstaklega þegar hann verður eldri.
Sp: Af hverju skelfur Chihuahua hundurinn minn??
Sv: Eins og sagt var áðan, þá er þetta einkenni Chihuahua hundsinns, þetta er oftast samskiptareinkenni af einhverri tegund. Þeir gætu verið hræddir eða óöruggir um einhvern eða eitthvað. Þeim gæti alveg eins verið kalt. Ungir hundar skjálfa oftast þegar þeir eru nýbúnir að borða (þó að máltíðin hafi verið heit). Venjulega er skálfinn afleiðing af því hvað Chihuahua hundurinn er lítill og líkamshiti hans því fljótur að breytast. Skjálftinn er því til að halda jafnvægi á mismuninum. Hafið það í huga að halda hundinum ykkar hlýjum á köldum vetrar kvöldum, það þarf ekki mikið til að honum verði ískalt. Þið takið eflaust eftir því að Chihuahua hundar elska að grafa sig inní teppi, eða í sólinni þá leggjast þeir á stað þar sem sólin skín, þó að sólin skíni rétt smá á bakið á þeim. Það er svo einnig hægt að kaupa föt á Chihuahua hundinn þinn, og ef þið eruð í skapi til þess að prjóna föt á hann, þá er það alveg tilvalið.
Ég heiti Bússi Sýnishorn Andersen Skand..
|
||
| Ég er algert rasgat .. .. ég verð stóribróðir í janúar og þessa dagana finst mér voða gott að kúra ofanaá bumbuni hennar mömmu .. mömmu hlakkar afturámóti til að sjá þegar krílið verður farið að sparka hressilega og íta við mér .. | ![]() |
Ég er ósköp ljúfur strákur með fullt af skemmtilegum persónuleika .. ég er voða fljótur að finna út hverjir eru líklegastir til að gefa mér að borða .. hehe .. og það eru sko aðalega ömmunar og afanir .. |
| Þetta er litli strákurinn okkar hann Bussi en stundum kalla ég hann bara sýnishorn þarsem hann er minni en köttur vinafólks okkar | Mér þikir voða gott að láta dúllast við mig og klóra í allar áttir nema með feldinum .. ér er voða naskur á að fá fólk til að stjana í kringum mig .. | |
| Það er alveg nóg fyrir mömmu og pabba að seigja Ferðalag og þá er ég arin í búrið mitt því ég er pínu smeikur við að vera skylin eftir ... | Ég tek því hlutverki mjög hátíðlega að passa húsið meðan mamma og pabbi eru í vinnuni .. enda held ég að pósturinn biðji fyrir sér í hvert skipti er hann kemur ... | |
| Ég er ekkert voða hrifin af baði en læt mig hafa það þarsem það er svo gott nudd sem filgir því .. | Flottir feðgar | |
| Ef einhvað dettur á gólfið þá ælt ég að borða það .. namm namm | ||
| Kúri kúri kúr... | ||
| Gott að kúra hjá pabba .. | ||
| SWko passar alveg .. skálmanar pínu of langar .. mamma lagar það bara .. | ||
| á ég að klippa hana eða bara greiða .. hmm .. | ||
| Ég kann líka hárgreiðslu leik .. | ||
| Jajaj þá er að fyrirgefa kellinguni klippinguna... | ||
| Flotti gallin sem mamma saumaði setndur alveg fyrir sínu.. | ||
| alltaf í útilegu.. | ||
| Maður er nú duglegur að aðstoða við upvakskið.. | ||
| Yndisleg fyrirsæta | ||
| Komin í lopapeisuna | ||
| Útilegu Hundurinn.. gott að kúra í pokanum hjá mömmu þegar kalt er orðið úti... | ||
| Ég Táta og Snati.. það vill bara eingin leika við okkur | ||
| Ég er alltaf svo speingilegur í sveitini hjá ömmu og Afa | ||
Snati búin að sækja bandið.. hann var á undam mér .. |
||
| Það er ervitt að ferðast mykið og fara svo á bílakepni með pabba .. | ||
| Minn fékk að kúra í gallanum hennar mömmu og gamlárs .. ég var merkilega spenntur fyrir öllum þessum ljósum .. en þau voru með hávaða.. | ||
| Jólatréð hjá ömmu og afa í Hólum. það verður að passa það vel.. | ||
| Þegar pabbi fer í vinnuna passa ég skóhilluna hans .. | ||
| Sko minn er stór .. | ||
| Maður á alltaf að borða allan matinn sinn .. ég er rosalega duglegur sérstaklega ef ég fæ einhvað annað en þurrmat.. | ||
| Sko maður á ekki að vakna fyrr en 12 á hádeigi.. | ||
| Ég vakta garðin okkar af algeri snyld. | ||
| Ef það heldur svona áfram að sjnóa þá verð ég bráðum hvítur. | ||
| Þarna er ég að prufa grindina á hjólið okkar .. mamma er búin að bólstra hana svo klærnar mínar festist ekki .. | Mér finst rosalega gaman að fara út að hjóla .. þarf bara að vera duglegri að draga mömmu og pabba út. | |
| Ég er audda bara flottastur.. | ||
| Sko ég passa mömmu sko vel.. | Alltaf gott að narta í beinið sitt í mömmu kjöltu. | |
| Það er einsogtt að taka út grillið hjá þeim .. ég meina þeir gætu klúðrað þessu .. | ||
| Sko mamma er alltaf að búa til einhvað fyrir mig .. þarna er ég í dekurtösku.. hún er svo kósí að mömmu langar bara að kúra sjálf í henni .. held samt að hún sé of stór í hana .. ég heppin .. | Ég fékk að fara með í brúðkaup Línu systur mömmu og Nonna kallsins hennar .. jebb núna eru þau hjón. | |
| Í fjallgöngu á Sandafelli. | ||
| Ég er sko virðulegur á toppi alheimsins. | Enn uppá Sandafelli. | |
| Sko þetta er nú soldið skrítið landsvæði.. | ||
| Sniðugar þessar buxur hennar mömmu .. | ||
| Sko núna er ég að kúra ofaná litla systkininu mínu sem er í bumbuni .. | Það er geggjað að kúrast í þessum buxum hjá mömmu.. | |
| Uppáhalds bangsin minn.. Froskurinn. |
Frændur mínir á Ísafyrði gáfu mér hann .. þeir eru svo góðir. | |
| Sko komin í nýja slyngið að hjálpa pabba að vaska upp.. við erum svo duglegir saman .. | ||
| Stundum held ég að ég sé páfagaukur og eigi að sitja á öxlini á mömmu. | Á þessari mynd er ég í fílu .. vildi sko ekki vera í bolnum mínum en mamma og babbi settu mig í hann kl 10 að morgni og ég var hálf stúrin allan daginn.. En svo pissaði ég bara á bolin og þá kom vond lykt og var tekin úr bolnum .. maður deir ekki ráðalaus. | |
| Karfan mín .. gott að kúra þar .. | Við ofnin og ofaná heitu gólfi .. það veðrur ekki betra. | |
| Ég er alltaf í búinu mínu í bílnum .. | Maður verður að vera í belti .. | |
Það er sko ekki gaman að vera settur í jólasveinabúning.. sérstaklega ekki þegar allir hlæja af manni.. |
Seinna áttaði ég mig á að ég var nokkuð fínn í þessum fötum sem mamma og pabbi keiptu í ameríkuni fyrir rmig.. Þá var ég bara glaður þó ég væri lítill jólasveinn. | |
| Sko bangsin minn kúrir hjá mér .. | Hann er nú soldið tuskulegri núna þessi bangsi .. spurning hvort ég fái lánaðan skó og reini að endurnýja .. sjáum til .. | |
| Virðulegur og flottur.. enda orðin stóribróðir og að verða stóribróðir aftur .. | ||
| Sko ef maður fer í sund verður maður að vera með kút. | Ég er reindar voða duglegur að spreingja kútana mína .. þetta er svo skemmtilegt dót. | |
| Flotti kollurinn minn .. Núna kemst ég uppí rúmm til mömmu og pabba án þess að þau lifti mér .. | ég get alveg hjálpað við að prufa svona hluti.. | |
| Nammi namm .. má ég líka fá .. | ||
| Þegar maður er búin að fá nammi verður maður að tannbusta tennunar sínar .. | ||
| Ég er rosaduglegur að tannbusta mig .. | Fékk smá hjálp frá pabba. | |
Svo getur maður líka bara borðað holt nammi.. Bússa finst sko epli æði.. |
Muna samt að passa tennunar.. |