Friðbert Helgi er lítið Kraftaverk
sem fæddist eftir 24 vikna og 2 daga meðgöngu

f. 28.09.2005 - d. 08.10.2005

 

 

Minningareikningur Friðberts Helga
1135-05-410042
kt: 1204805969

 

23 október 2007

Hérna er mynd sem við tókum þegar við vorum við leiðið í byrjun okt.
við létum litla gúmmí önd á leiðið.. verður að vera einhvað bannalegt fyrir börn.

 

 

Myndin er tekin í niða myrkri .. fallegur er garðurinn á kvöldin .. kyrrlátur og friðsæll.

kveðja Mamma og pabbi sem loksins gátu heimsótt engilin sinn.

*************************

 

1.okt 2007

Afmælisveislan þín var í gær.. fáir mættu en það voru þó góðar sálir sem mættu..
spurning hverig við höfum þetta að ári..
Við munum alltaf halda uppá líf þitt..maður verður að halda upp á þetta góða svo það neikvæða taki ekki yfirhöndina..
Við spiluðum ekki myndadiskin þinn í gær en ég held við gerum það frammveigis..
tilefni dagsins hvaf soldið og sumir voru ekki að virða hvers eðlis væri .. það særði soldið en við erum sterk og erum ekki að velta okkur uppúr því enda er þetta liðið og ekki breitt..

Við erum að pæla í aðhlda aftur uppá líf þitt fyrir vestan .. spurning hvernig við gerum það .. spurning hvort það verði ekki bara næsta sunnudag svo stóru frændur þínirí dalnum komist líka.. spurning að hafa nammikökuna og svo brauðbollur.. við finnum einhvað sniðugt..

Við sendum vökudeildini tölvupóst á föstudagskvöldið, svona til að þakka fyrir allt þegar þú varst á lífi og eins til að seigja þeim hve heppin þú ert í dag að eiga litla systir ..
Fólkið á vökudeildini var frábært við okkur bæði á meðan þú varst þar og eins stuðningurinn sem við fundum þegar þú fórst á vit englana..

knús og kremj Mamma og pabbi

************************

28 september 2007

Engillin okkar orðin 2 ára..öruglega stór og stæðilegur gutti í dag
sem lætur langömmur og afa hafa nóg fyrir stafni.

Langt síðan mamman pikkaði einhver orð hingað inn.. litli prinsin okkar er þó alltaf í huga okkar ...
jafnt daga sem nætur.. og undanfarið alveg extra mikið..

Elsku Friðbert Helgi við elskum þig af lífi og sál .. þú ert stór hluti af okkur og verður alltaf, við minnumst þín á hverjum deigi og núna höfum við litlu systur þína hjá okkur en við erum alltaf að sjá meira og meira af þér í henni.. systkinasvipurinn leinir sér sko ekki og rauða hárið hafið þið sameiginlegt .. um leið og við kynnumst systur þinni þá finnum við svo sterkt hvað við fórum á mis við með þér en við vitum að þú ert á góðum stað í góðra faðmi og bíður þess að hitta okkur þegar okkar starfi er lokið hér á jörðu.

Mörg tár hafa fallið undanfarna daga ég sakna þín svo mikið .. vildi óska þess að þú værir hérna að leika við litlu systur þína og Bússa.. Ég hélt að söknuðurinn yrði kanski að minni í ár þarsem systir þín er hérna hjá okkur en svo er ekki .. enda eruði ekki sama barnið.. og það kemur sko eingin í staðin fyrir þig.

Við erum ekki við leiðið þitt einsog við lofuðum en við verðum þar fljótlega.. þú fékst þó afmælisgjöfina þína frá okkur í dag .. tvær eru rósinar í ár en ein Rós mun bætast við ár hvert..
En Ásta amma og Berti afi sendu okkur mynd af afmælisleiðinu, en það gerðu þau líka í fyrra en núna erum við þó búin að búa hlílegra um ykkur langömmu þina og langafa .. þarsem það er komið gras og fínheit.


Leiði með blómonum frá mömmu og pabba.

Tímin líður og það er ótrúlegt að hugsa til þess að það séu tvö ár síðan við eignuðumst fyrsta gullmolan okkar.. tvö ár síðan við lutum kraftaverkið okkar augum litla fallega dreingin okkar..
Við vorum að skoða myndinar hans um daginn og áttuðum okkur þá á því að hann var rauðhærður eins og systir hans en við höfum alltaf verið á því að hann hafi verið ljóhærður en svo var ekki, sennilega hafa ljósin í kassanum hans bara ekki gert okkur kleift að sjá þetta almennilega en það fer ekkert á milli mála núna þegar við skoðum myndinar, en það er bara krúttlegt þarsem systir hans er með þennan sama rauðgylta lit.

Þegar litli drengurinn okkar var að deija var hann settur í fangið á mömmu sinni.. það var vitað 100% að hann kæmi ekki til baka og því tilganglsaust að halda áfram lífgunar tilraunum enda báðum við um að það yrði ekki gert ef hann yrði ekki 100% eftir þær .. þarsem það er ekkert líf að vera með mikin heilaskaða..
við vorm með myndavélina okkar með og læknirinn okkar tók fyrstu og einu fjölskuldumyndinar með okkur með prinsin í fanginu.. á myndini er búið að afteingja allar vélar og hann er að fjara úr.. við erum að kveðja hann, seigja honum að við elskum hann og að hans yrði sárt sakanað...

Ég vann myndinar soldið því finst þessi bara falleg einsog hún er ...

Í huga okkar og hjörtum um ókomna tíð

Mamma og pabbi.

***************************

 

29.sept 2006

Þá er litli engillin okkar orðin 1 árs..

Dagurinn í gær var nokkuð góður en ég get alveg viðurkent það að það var stutt í grátin fyrripart dagsins .. en ótrúlegur styrkur sem fylgdi fólkinu sem kom og hélt uppá afmælið hans með okkur .. bara yndislegt ...

Mér var hugsað til litla smalans míns í nótt.. því fyrir mér er Friðbert Helgi alltaf litli Smalinn hann er án efa með afa sínum alla daga núna að aðstoða við smalamenskuna ..

En daginn sem vatnið fór í fyrra áttum við að vera stödd í smalamensku en vegna veðurs afréð pabbi að við kæmum .. við þrjóskupúkanir voru ekki alveg á því að gefast upp og sögðumst sjá til .. en vitguðumst svo og vorum heima .. enda eins gott ... það er ekki víst að engillin okkar hafi feingið að vera hjá okkur í 10 daga ef við hefðum verið komin vestur á fyrði þarsem veðrið var nú ekki endilega það besta og ja við þurftum að komast í tæri við vökudeildina fljótt ef einhvað færi meira í gang... sem var þó ekki fyrr en 4 dögum seinna en maður veit aldrei hverni þetta hefði verið ef aðstæðunar hefðu verið aðrar.. þarsem það var ekkert sem gat varað okkur við á neinn hátt...

Mamma og pabbi fóru með blóm á leiði Friðberts Helga í gær .. og Lína systir keipti eina hvíta rós fyrir okkur og fór með .. en við ætlum að bæta einni rós við við hvert ár sem við höfum þurft að lifa án hans .. við munum þó sennilega reina að færa honum rósirnar sínar sjálf á næsta ári ásamt litla systkininu hans og Bússa..

Við útbjuggum myndband.. í myndbandinu voru allar bestu myndinar af lífi hans og kveðju stund.. eins svoru í myndbandinu nokkur video sem ekki margrir hafa séð .. létum við svo milda músik undir og létum þetta rúlla í afmælinu hans í gær.. það var ferlega gott að hafa þessar myndir .. íttu undir afhverju við vorum saman komin og síndi gleðina sem fylgdi lífi hans jaft og sorgina við það að hann kvaddi.. sameiningu fjölskyldna okkar og samstöðu í lífi og sorg.. óneitalega einhvað sem við gleimum aldrei..

Svona var afmælisleiðið hans .. fult af kærleik og litum..

Í gær voru svo öll ljós slökt á höfuðborgarsvæðinu .. svona smá gjörningur í tilefni því að kvikmyndahátið væri að byrja .. við tökum þetta til okkar og seigjum að þetta hafi verið gert í minningu um Friðbert Helga. smá gjörningur í tilefni 1 árs afmælisins..

Mamma ég er hjá þér,
horfi á þig sofa,
ligg í faðmi þér
og hlusta á hjarta þitt slá
ég veit þú sérð mig ekki
en ég sé þig

Ég vil að þú grátir ekki
minnist mín með gleði
því þó við kynntumst lítið
þekkir þú mig best.

Ég er hjá Guði núna
og hinum englunum,
ég finn hlýjuna þegar þú hugsar til mín.

þó ég vildi frekar vera hjá þér núna
liggja í faðmi þínum
halda í hönd þína
líður mér vel hérna.

Haltu í minninguna,
hugsaðu um þegar þú sást mig sparka
hvað þú varst stolt.
ég elska þig mamma
og veit að þú munt aldrei gleyma mér!!

oooooooooo

Ljósið á himnum lýsi þér
litli fallegi drengur.
í hjarta mér og fleiri hér
brostinn er einn strengur.

ooooooooooo

Fegurðin er frá þér barst,
fullvel þótti sanna,
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.

Hlutverk þitt í heimi hér,
þú hafðir leyst af hendi.
Af þeim sökum eftir þér,
Guð englahópa sendi.

Sú besta gjöf er gafst þú mér,
var gleðisólin bjarta,
sem skína skal til heiðurs þér,
skært í mínu hjarta.

Takk fyir all yndilega fólk...

knús og kossar
Hrönn engla mamma og Hafsteinn engla pabbi..

 

 

27.sept 2006

Engillin okkar alveg að verða 1 árs .. ég finn meira og meira fyrir söknuði..
Tómleika og tárin flæða æ oftar og alveg uppúr þurru...
Ég bakaði í gær fyrir afmælið hans ..og Hafsteinn þreif á meðan..
Töluðum svo um að sennilega værum við að gera nákvæmlega sömu hluti ef hann væri á lífi nema það að við værum alltaf að kikja á litla gullið okkar sem væri sofandi inní herbergi...

Það er svo skrítið að hugsa til þess að á morgun er ár síðan
við litum litla kraftaverkið okkar augum í fyrsta sinn.. ég held ég gleimi aldrei þeirri tilfinningu sem ég uplifði þegar ég sá hann fyrst .. fanst hann fullkomin og æðislegur..
Sá einkenni sem hann hafði frá okkur og vissi þá að hann væri sko okkar til eilífðar..
Indislegasta tilfinning sem hægt er að uplifa.

Ég las aðgerða skýsluna um keisaran í gær og eins skýslu sem var gerð um Friðbert Helga..
Get ekki sagt annað en að það hafi verið rosalega gott.. fékk mig til að skylja betur ferlið sem við geingum í gegnum .. og skyl læknirinn hans Friðbert Helga svo vel að vera ósáttur yfir að missa hann .. eins hef ég oft velt því fyrir mér hvort ég hafi verið á einhverju fölksu skýi þegar ég var að skrifa um líf hans þá 10 daga sem hann lifði.. en eftir að hafa lesið skýsluna þá veit ég að við vorum ekkert of vongóð .. það leit allt mikið betur út en læknanir þorðu að vona .. það var ekki bara stoltir foreldrar sem sáu það .. Enda var það sjokk fyrir bæði okkur, lækna og hjúkrunar fólk.. þegar endalokin kómu..ja og alla okkar..

Ég mun aldrei gleima þeim símtölum sem ég hringdi með litla fallega engilin minn í fanginu
þau eru um aldur og ævi greipt í huga mér ..
Þetta voru símtöl sem ég vona að ég þurfi aldrei að endurtaka um neitt af mínum börnum..

Ég man líka hverjir stóðu okkur næstir á þessari stund .. hverjir studdu okkur gegnum allt og hverjir hafa sínt okkur þann stuðning sem við höfum þurft á að halda síðan ..
Þeim verður ei gleimt.. það að fá stuðning fólksins síns er meira virði en orð fá líst.
Maður skylur það best þegar á reinir..
Kanski er það þessvegna svo sárt þegar maður uplifir anstæðuna
frá þeim sem maður hélt sig geta leitað til ..

Minningar afmælið er á morgun ..
Mig kvíður ekkert fyrir því eða neitt.. meira svona ánægð að allir þeir sem ætla að koma vilji koma og deila þessari stund með okkur .. en það gleður hjarta okkur óneitalega..

Að eilífu amen.

 

 

14.Sept 2006

14 dagar í það að engillin okkar verður eins árs... jebb ég vil hugsa til þess að hann hafi stækað og dafnað á himninum. orðin stór og stæðilegur og fylgist með okkur og heldur vermd yfir litla systikini sínu..
Það er furðuleg tilhugsun að litli engillin okkar verði stóri bróðir ..
En ég eva ekki að hann mun sinna sínum stóra bróður skyldum þaðan sem hann er ..
Við ætlum að halda uppá afmælið hans .. bjóða uppá nammi köku einsog í sönnu barnaafmæli og gleðjast yfir því lífi sem hann átti ..minnast hans og tímans sem við áttum með honum .. ég sé hann fyrir mér skelli hlæjandi í fanginu á ömmu og afa og er nokkuð viss um að hann bræði þau öll ...
Um daginn tók hann án eva á móti frænku sinni sem kvaddi þennan heim eftir hetjulega baráttu við ólæknandi sjúkdóm.. munu þau singja og ganna sér um ókomna tíð á meðal engla og góðra anda... halda vermd yfir sínum og gleðjast á góðum stundum..

Við söknum engilsins okkar rosalega mykið .. það gera líka margir góðir í kringum okkur ..
Friðbert Helgi var heppin .. hann á rosalega marga sem þykir vænt um hann og munu alltaf minnast hans ..hann verður í hugum svo margra..
Hann var hetja sem aldrei mun gleimast ..

Tárin flæða í hvert skipti er ég set einhver orð hingað .. en það eru bara góð tár..

Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur
Mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engill, svo ég sofi rótt.

 

 

 

14.júlí 2006

Vorum fyrir vestan um daginn .. fórum þá og tókum til hjá leiðinu stækuðum það slatta og bætum við blómum... erum mjög sátt við niðurstöðuna .. ætlum að fara svo snemma á næsta ári og byggja það almennilega upp og tyrfa í kring ..

 

5.maí 2006

Þú ert svo mykið í huga mér elsku dreingurinn minn .. Það er svo ervitt að hugsa til þín án þess að fella tár .. og núna eru tárin sko í tonnavís... Ég sakna þín svo ...
Mér sárnar svo allt sem þú fékst ekki að njóta .. mér þykir svo væntum augnablikin sem við áttum saman .. Það líður ekki sá dagur er ég hugsa ekki til þín ..
Það tala allir um að við séum svo sterk en við erum það ekki í raun..
hjarta okkar blæðir dag hvern .. Ég vildi óska þess að hafa feingið að hafa þig leingur hjá okkur .. fá að kinnast þér, búa til minningar með þér .....
Eingin veit hvað átt hefur fyrr en mist hefur .. þessi orð hljóma í huga mér dag hvern ...
Ég vildi óska þess að fá að knúsa þig einu sinni enn, en það er ekki hægt ...
Þú ert lítil hetja ....
Eingin skylur sem ekki hefur prófað .. ég vill ekki að neinn þurfi að kveðja barnið sitt einsog við þurftum að kveðja þig .. það er alltof sárt og eingin á svo mykin sársauka skylið..
Stundum er svo ervitt að tala um þig en aðra daga þykir mér rosalega vænt um að fá að tala um þig .. Ég veit að pabba þínum líður alveg einsog mér en hann er bara voða duglegur að vera sterkur fyrir mig því ég er svo oft í algeru rusli af söknuði til þín ..

Við söknum þín nú og að eilífu ..
Mamma. Pabbi og Bússi..sem er alltaf að leita af þér ..

Hönd þín snerti
sálu okkar
Fótspor þín liggja
um líf okkar allra

 

 

14.jan 2006

Okkur langaði bara að sína ykkur að jólin kómu sko alvega hjá Friðbert Helga, langömmu og lang afa hans ,.. eins kveiktum við á stjörnuljósum í kirkjugaðinum um áramótin þannig að þau feingu áramót líka .. knús og kossar til ykkar allra ..

 

26.okt 2005

Við erum komin aftur suður..

Greftrun Friðberts Helga var mjög látlaus og falleg... Pabbi (Berti) bar kistuna inní garðin og að greftrunar stað..Við létum kistuna síga í bláu lérefti og létum svo bara léreftið umluka kistuna .. við spiluðum eitt lag og svo fór presturinn með fallegt vers.. Það var mjög kalt þennan dag en mjög fallegt veður eingu að síður .. á meðan lagið spilaðist var þarna lítill fugl að skoða okkur svo þegar það kom fly fly away þá flaug fuglin í burt.. mjög táknrænt og fallegt. eftir á var smá kaffi úti í Hólum ..

Það var mjög skrítið að sitja í bílnum fyrst eftir að við náðum í kistuna á útfarastofuna .. en á meðan það var sorglegt þá filltist maður frið .. og um leið var þetta áminning um það að Friðbert Helga feingum við aldrei aftur ...

Friðbert Helgi var svo grafin á milli Línu ömmu og Deingsa Afa .. við vorum alltaf á báðum áttum hvar nákvæmlega í garðinum við ættum að jarða hann en þegar við kómum í garðin fyrir vestan þá kom þessi eini staður bara til greina .. og erum við mjög sátt við þá ákvörðun. Pabbi(Berti) Gekk svo frá leiðinu , setti krossana upp og allt sem því tilheirði.. mjög fallega sett framm hjá honum .

Það var stungið uppá því að við myndum opna minninga sjóð um Friðbert Helga.. svona bankareikningur sem hægt er að leggja inná ef maður vill minnast hans á afmælum og svoleiðis.. ég hef verið að hugsa þetta og jú ég held við höfum bara reikning fyrir hann .. hugsa ég að þessi reikningur verði notaður í kaup á fallegum legstein og eins til að borga glasameðferðir í framtíðini.. því glasa leiðin er okkar eina leið til þess að geta gefið honum systkini..

Eins langar mig að biðja þá sem hafa enn hug á að færa okkur einhvað að gefa frekar peningin fyrir til barnaspítalans eða setja í minningar sjóð Friðberts Helga... þó það sé gaman að sjá hve margir hugsa til okkar og gaman að fá allar þessar fallegu Vendi/stittur höfum við bara svo takmarkað að gera við þessa hluti.... minning Friðberts Helga lifir leingi með okkur miningin er ekki á leiðini neitt þannig að við þurfum ekki hluti til þess að minnast hans ..

Jajaj látum þetta nægja.. Takk fyrir allar kveðjunar .. knús Hulda, Hafsteinn og Bússi

--------------------------------------

 

16.okt 2005

Athöfn Friðberts Helga var yndisleg á föstudaginn .. Við eigum frábæra nágrana en Marteinn sá um að spila í athöfnini ásamt að það var spilað af geilsadisk með Elleni Kristjáns. Presturinn (séra Ægir) fór með vel valin orð sem voru hnitmiðuð og pössðu vel við litla líf Friðberts Helga.

Ömmunar héldu þetta snildar kaffiboð og viljum við þakka þeim og öllum sem kómu í það... það var yndislegt að hitta ykkur öll og finna stuðningin sem okkur er síndur ..

Við munum keira Friðbet Helga vestur á Þriðjudagsmorgun og mun hann svo vera jarðsettur á miðvikudag .. En séra Agnes mun sjá um þann hluta ferilsins fyrir okkur .. en við ætlum svosem ekki að hafa neitt stórt bara pínu í kirkjugarðinum .. eitt lag og loka kveðjustund..

látum þetta nægja í bili .. knús til ykkar allra Hulda, Hafsteinn og Bússi

-------------------------------------------------

 

12.okt 2005

Við munum kveðja litla dreingin okkar þann 14.okt 2005 í bænarhúsinu í fossvoginum .
það verður lokuð athöfn fyrir okkar allra nánustu..
Dreingurinn verður svo jarðsettur fyrir vestan á Þingeyri þann 19.okt en við munum keira hann á mánudag/Þriðjudag vestur..

(14.okt) Eftirá hafa ömmur hans ákveðið að bjóða uppá kaffi þarsem vinir okkar og vandamenn geta komið og hitt okkur .. það verður um kl 16:00 og frammeftir .. að Hlíðartúni 3 Mosfellsbæ (heima hjá Enjó Ömmu og afa) .. Öllum okkar vinum er velkomið að koma þangað ..

Við þökkum allar kveðjunar í gestabókini það er okkur mykill ylur að sjá hve margir hugsa til okkar .. knús til ykkar allra .. kv Hulda, Hafsteinn og Bússi

-----------------------------------------------------------

8.okt 2005

Litlli dreingurinn okkar dó um kl 12 í dag .. eftir hetjulega baráttu fyrir lífi sínu .. hann fór friðsamlega ..

-----------------------

7.okt 2005

Dreingurinn er stöðugur og fínn.. seigir spítalin 8:45

Jajaj þá er dreingurinn okkar orðin 9 daga gamall.. ótrúlet en satt .. í gær fórum við í smá viðtal við barnalæknin á deildini og okkur gefin svona púlsin á stöðuni .. þetta var góður fundur þarsem spilin voru bara sett á borðið og búmm svona eru hlutinir ..

Þegar Friðbert Helgi fékk loftbrjóstið þá féll annað lungað saman ... í dag er það lunga frekar veikt og laskað .. og ekki alveg vitað hvernig það mun pluma sig en á meðan verður Friðbert að notast meira við hitt lungað .. Það að hafa fæðst svona snemma seigir okkur soldið mykið um það að hann verður alltaf með soldið veik lungu, þarsem lungun hans þurftu að fara að vinna hlutverk sem þau voru ekki tilbúin til.. þarafleiðandi munum við þurfa að vera frekar hörð í sambandi við utanafkomandi áhrif , semsagt reykingar, mykin kulda,og svoleiðis því þessir hlutir geta haft mjög slæm áhrif á lítil veik lungu..

Það er mjög fært fólk sem hugsar um Friðbert 24-7 og treistum við því fullkomlega .. það er allt gert til að honum líði sem best.. læknirinn talaði um að hann væri greinilega sterkur og þrjóskur .. þau börn sem fæðast svona snemma þurfi hrienlega að vera svoleiðis ef þetta á að ganga einhvað ..

Hann er núna farin að fá 4ml á tveggja tíma fresti ... okkur var sagt í gær að doksanir hefðu viljað að hann væri farin að fá meira en það verður víst að spila þetta eftir dreingnum ..
Hann fékk legg í æð svo hægt væri að gefa honum meiri næringu til að hjálpa honum að stirkjast .. og gekk ísetningin bara vel .. snillingar þessir doksar ..

Dreingurinn var hin sprækasti í gær þegar við vorum þarna hjá honum .. núna er markmiðið að hann fái sem mest af ferskri mjólk þarsem að mótefnin eru best í henni .. en við feingum að gefa honum tvisvar meðan við stoppuðum hjá honum .. ;)

Á meðan ég var í mjaltavélini góðu þá fékk hjúkkan hans Friðberts Helga Hafstein til að hjálpa sér að taka til í kassanum hans .. en hún er mjög kvetjandi og góð.. lét til dæmis Hafstein skipta á kúkableiju og halda á dreingnum (halda dreingnum uppi) meðan hún lagaði allt dótið sem er haft undir honum .. en dreingurinn var orðin ein víraflækja ..

á meðan þetta var allt í gangi sat mín í mjöltum og horfði á .. það var yndisegt að sjá Hafstein (stolta pabban) með litla strákin okkar ..

Þó dreingurinn sé sprækur er hann einganveigin hólpin ... hann er ofboðslega veikur og enn í dag getur allt farið á versta veg .. það er ekkert örugt í þessu lífi..

jajaj læt þetta nægja í bili .. endilega kvittið í gestabókina þarsem það er ekkert sniðugt að sjá hve margir koma og kiki en kvitti ekki .. .. knús mamman

 

---------------------------------------------

6.okt 2005
10:31

Við vorum að hringja á vöku og dreingurinn er bara stöðurgur og fínn .. við förum svo í viðtal við barnalæknin kl 16 í dag .. en við höfum ekkert spjallað við doksana markvist síðan á laugardaginn þegar vatnið fór...

En dreingurinn okkar er viku gamall.. geggjað að vera búin að ná því .. svo er bara að halda áfram að krossa putta og vona það besta .. knús og kossar .. mamman

--------------------------------------

5.okt 2005

Enn spriklandi ..

Jajaj við fórum bara einu sinni til Friðberts Helga í dag .. við vorum soldið seint á ferðini þarem við vorum að vesenast í pappírum fyrir fæðingarorlofið... og þegar maður er búin að eignast svona gullmola þá bara vilja allir henda í mann kveðju, heira stöðuna og knúsa mann smá .. þannig að þetta tók allt tíma ..

Vinnan hans Hafsteins elti okkur uppi og færði okkur þennan flotta blómvönd.. ekkert smá stór og flottur ..

Þegar við vorum uppi á vöku í dag tókst litla guttanum okkar að láta hjarta okkar hætta að slá .. úff .. það var ervitt .. en allt í einu datt hjartslátturinn hans niður og súrefnismettunin líka .. úff okkur stóð ekki á sama .. en eftir smá stund og hellings pot fór þetta allt í rétta átt aftur ... vá ég hélt hann myndi bara deija þarna og ekkert væri hægt að gera .. maður bara fraus og vissi ekkert hvernig maður átti að snúa sér ..svona vildi ekki vera fyrir og ekki fara ...

Eftir að við kómum heim þá bara lagðist mín í sófan og steinsofnaði .. bara búin á því eftir þetta allt saman ... ég er reindar búin að vera að berjast við hálfgerða stíflu í öðru brjóstinu og við fróðleikslestur áðan þá er þetta annaðhvort venjulegur stálmi eða brjóstabólga .. og ef öll ráðin sem við erum að vinna með núna virka ekki og ég verði orðin fín annað kvöld þá verð ég að tala við doksa þarsem það er ekkert óalgeingt að þurfa fúkkalyf við svona ... en annas ganga mjaltinar bara fínt .. ég er komin með hellings byrgðir uppi á vöku og eins hérna heima .. en guttin er farin að fá 3ml á tveggja tíma fresti svoframalega að hann sé búin að melta það sem hann fékk í síðustu gjöf .. annas er bara spilað eftir hvernig staðan er hverju sinni..

Það var aftur prufað sípabb í morgun og það fór sviðað og í gær .. þannig að dreingurinn er ekki alveg tilbúin að sleppa öndunarvélini enda veit maður ekki hvernig færi ef hann væri bara með sípabb og einhvað einsog í dag myndi gerast .. úff ..

En allaveg stráknum geingur ágætlega .. maður verðru bara að tala einn dag í einu og vona það besta .. það er soldið ervitt þarem maður vill bara skipuleggja heimkomuna og allt slíkt .. en það er bara alveg bannað þarsem hann er ekki enn hólpin ..

jajaj biðjum að heilsa í bili ..knús og kossar .. endilega kvittið í gestabókina .. það gefur okkur svo mykið að sjá hverjir eru að fylgjast með .. kv H&H

----------------------------------------------

 

4. okt 2005

Áfram heldur Friðbert Helgi á að vera kraftaverk..

Ég held að allir séu bara orð vant uppá vöku hve vel geingur með gutta..

Það hafa ekki enn komið fleiri áföll .. hann fór í hjarta óm í dag og fósturæðin var búin að loka sér en það hafði verið búið að tala um að setja hann á lyf til að loka þessari æð en það þarf greinilega ekki .. (held allavega öruglega að það sé ekkert búið að vera að gefa honum lyf.. allavega æðin er lokuð).. og Hjartalæknirinn er bara hæst ánægður með hann .. heilbrigt og flott hjarta þarna á ferð ..

Hann fékk að prufa sípabb í morgun .. það gekk ekki alveg nógu vel .. en honum varð ekki meint af .. hann var með sípabbið í klukkustund.. þetta sípabb er semsagt svona súrefni í nefið þarsem það er bara nettur loftþrístingur á .. en það þykir ekki holt að ver of leingi í öndunarvél með barkaþræðingu .. en þannig er hann núna .. það er samt mjög svo jákvætt að hann hafi verið komin á það stig að fá að prufa hitt..

Hann er farin að opna augun oftar og svo grettir hann sig á alla kanta af og til .. setur í brýnnar og solleiðis...

Við feingum að vita áðan að hann má fá sokka og ég held að hann verði komin með nokkur pör áður en langt um líður allavega keiptum við Lanett hnotu áðan og ég ætla að gera fyrir hann tátílur ..

Teingdamamma (Amma sólrún) kom og kikti á gutta í dag .. fékk aðeins að koma við hann .. ég væri ekki hissa á að hún væri enn í skýonum .. hehe ... Siggi verður bara að binda spotta í hana svo hún haldist af og til á jörðini ;) .. það er greinielga gaman að vera stolt Amma ..

Ég get ekki sagt annað en að það er mjög gott að vera komin heim .. ég svaf mjög vel í nótt og lagði mig seinnipartin .. en ég er greinilega ekki gerð til að liggja á sjúkrahúsi ..

Núna erum við farin að frista mjólk hérna heima .. þarsem við eigum fristikistu þá er það ekki vitlaust .. mjólkin geimist í ca 6 mánuði í fristikistu en uppi á vöku er fristiskápur og geimist mjólkin ekki alveg eins vel þar .. eða í ca 3 mánuði minnir mig.. en svo förum við með ferska mjólk til Friðberts á hverjum deigi ..

Hann er búin að kúra sig í fósturstellingu í allan dag .. sem er alveg nýtt .. hann vildi alltaf vera að teigja sig í allar áttir ..

Hann er þó með kreftan hnefa sem hann geimir undir hökuni alveg einsog Berti afi .. ferlega skondið að sjá þetta ...

Eins er hann voða duglegur að toga sonduna sína upp.. og var hann búin að tosa svo mykið í hana áðan að það varð að setja nýja .. en núna er hann farin að fá 3ml á tveggja tíma fresti svoframalega að hann hafi náð að melta einvhvað af því sem fyrir var .. en það er dreigið uppí sprautu til að fylgjast með ..

jaja látum þetta nægja í bili .. alltaf gaman að geta sett jákvæðar frettir og vonum við að það verði svo leiðis áfram ..

við ætlum að reina að fæðingarorlofast á morgun .. semsagt klára pappírsdæmið... ..


jaja knús og kossar .. takk fyrir allar kveðjunar ..og haldið áfram að kvitta í gestabókina .. kv Huldukonan .. sem er orðin mamma

---------------------------------------------------

3. okt 2005.

Óli föðurbróðir 25 ára .. til hamingju með það ..

Friðbert Helgi er alveg að standa sig einsog hetja .. hann er svo duglegur að það er búið að minka það sem önunarvélin andar fyrir hann en samt er hann að anda örlítið oftar en vélin gerði áður .. eins er hann farin að anda bara andrúmslofti en ekki auka súrefni .. sem þykir mjög gott .. doksanir sögðu í dag að það lít út fyrir að það verði hægt að taka hann úr vélini tímabundið .. en þarsem hann er svo lítill er potþétt að hann þurfi að fara aftur í vélina en allur tími í pásu frá vélini er góður tími þarsem það getur skemmt svo lungun og augun að vera endalaust í vélini ..

Hann er farin að opna augun oftar .. alltaf að kikja á okkur.. algert rasgat .. og svo erum við farin að sjá að hann er hellings loðin en öll hár eru frekar Hvít .. hann er með svaka augabrúnir .. alveg hvítar og svo stefnir hárið í þennan fína hanakamb... ..

Hann er voða duglegur að spræna á doksana .. enda ekta strákur .. en hann er ekki enn farin að kúka neitt að ráði ..

Mamman er komin heima af spítalanum .. en þarsem dreingurinn verður þarna sennilega þartil í jan þá verðum við með annan fótin þarna þangað til ..

Það var voða skrítið að fara og skylja dreingin eftir .. úff það var ömuleg tilfinning.. en svo þegar við kiktum á hann áðan þá leið okkur myklu betur ..

Bússi var frekar ánægður með að fá mömmuna heim en hann var ekkert spentur þegar hún gat svo ekki sint honum meðan hún var að mjalta sig .. en Strákurinn hrekkur upp við öll barna hljóð í sjónvarpinu og leitar að barninu.. það verður gaman að geta kynt bræðuna þegar Friðbert kemur heim ..

jajaj ég mun örugega pósta soldið hérna á hverjum deigi .. veit samt ekki enn hvaða tími verður nýttur í það en læt vita ca hvenar frétta má vænta .. ... endielga haldið áfram að kvitta í gestabókina .. þetta eru ómetalegar kveðjur sem eru að koma og hjálpar okkur helling að sjá hvað margir standa að baki okkur .. knús og kossar mamman ..

 

--------------------------------------

2.októmber 2005
5. dagur Friðberts Helga

Það er ekki hægt að seigja neitt um þennan dreng annað en að hann er algert kraftaverk..

Í dag hefur allt verið einsog best er á kosið .. súrefnismettun blóðþrístingur og allt bara frábærlega gott.. Hann er farin að fá meira að borða .. semsagt 1ml á tveggja tíma fresti sem er hellings framför miðavið hálfan millilíter á 4 tíma fresti …. Mamman er líka alveg að mjólka helling fyrir gaurinn fór áðan með 40 og 60 millilítra eftir einar mjaltir… Ég er reyndar að fá smá stálma en það gengur líka ágætlega að ná þeim í burt.. svo ætlum við að hringja í móðurást og panta leigu á mjaltavél.. þarsem það verður virkileg þörf á því ..

Dagný kom í heimsókn áðan .. færði guttanum samfellu, útigalla, kross og sokkabuxur.. ferlega sætt .. en Pálmar og Kristjana komu færandi hendi í gær með Bangsa (lamb fyrir litla smalann) og vettlinga .. gaman af því hvað fólk finnur pínkulítil föt á gutta… En ömmurnar og Afanir gáfu honum fyrstu fötin sem eru buxur peisa og húfa í stærð 40 .. en skondið að seigja það að hann kæmist sennilega allur fyrir í einni skálmini…. Þannig að þá er bara að stækka til að geta farið að nota þessar dýrindis gjafir....

Það er ferlega gott að hitta fólk og fá að spjalla um heima og geima …. Seigja frá kraftaverkinu og svoleiðis og viljum við þakka allt innlit það er ótrúlegt hvað það gefur manni ..

Við erum semsagt búin að skreppa 3 uppá vöku í dag .. og alltaf er Friðbert Helgi jafn afslappaður og í góðu róli… hann greinilega veit að það á að slappa af á sunnudögum..

Svo verða saumarnir teknir hjá mér á morgun og ég fæ sennilegast að fara heim á morgun eða hinn .. það verður án efa soltið skrítið að fara heim án Friðberts Helga þarem það er ekki beint inni í myndinni þegar maður fer að eignast barn .. þá bara gerir maður ráð fyrir því að allt gangi vel og móðir og barn fari saman heim … en Við erum svosem öðruvísi fjölskylda og förum greinilega öðruvísi leiðir..

Við spjölluðum við eina mömmuna í gær en hennar strákur fæddist álíka stór og Friðbert Helgi.. hún talaði um að vika 2 sé verst þannig að núna undirbúum við okkur undir það versta en vonum það besta ..

Við finnum vel fyrir því hve gott er að eiga góða fjölskyldu við svona aðstæður og þökkum við okkar fólki kærlega fyrir … við sendum yfirleitt eitt sms til ömmur og afa yfir miðjan daginn þegar við erum búin að heilsa uppá gaur.. svona til að gefa púlsin af stöðunni…

Það er búið að finna skírnavota fyrir drenginn en ömmurnar fá að taka það að sér … þasem hann fékk nöfn afa sinna þá fannst okkur tilvalið að fá ömmurnar í hitt .. þannig að þá er bara byrja að æva sig í að vera fyrirmynd guttans... við erum búin að pæla mikið í þessu með skírnina núna síðan hann fæddist vorum ekkert búin að pæla í þessu annað en að við ætluðum að láta skýra hann.. en mér fannst vera soltin uppgjöf í því að hendast í að skýra núna um helgina .. þannig að við ákváðum að hann yrði bara skýrður þegar amman og Afinn í Hólum koma suður .. óháð því hvenær það verður .. ekkert að flýta okkur þessi strákur ætlar að verða stór og sterkur…

En svo er pælingin búin að vera af hverju að skíra hvað er það sem tilheyrir skírn og hvað mun breytast við skírnina .. jú hann verður tekin í tölu kristinna manna og einhvað slíkt en svo er hvað felst í að vera skírnavottur .. við erum búin að ákveða að skírnavottur er að veita barninu trúarlega leiðsögn og vera því fyrirmynd…

Það eru alveg yndislega hjúkkur hérna á meðgöngudeildinni… getum ekki kvartað yfir neinu .. við erum búin að klára pelabyrgðinar þeirra hehe … þannig að það byrjað að fara á næstu deildir til að fá lánað.. hehe .. nóg að gera hjá þeim í að snúast um okkur .. ég er svona að læra að leifa öðrum að hugsa aðeins um mig .. Hafsteinn er reyndar besta hjúkkan … hann kallar sig reyndar mjólkurbónda þessa dagana enda gengur allt útá það að kíkja uppá vöku borða og fara í mjaltavélina …

Núna og í gær er Bússi búin að vera í pössun hjá ömmu og afa í mosó en Gestur og Óskar voru í mömmu helgi núna og eyddu semsagt dögunum í að leika við Bússa …

Það verður án efa skrítið að hitta Bússa aftur honum var farið að líka frekar vel við að knúsa bumbuna og svo kemur mamma bara bumbulaus heim.. og eingin litlibróðir .. það verður líka forvitnilegt að sjá hvernig honum verður við að sjá mig endalaust í mjaltavélini …

Jaja látum þetta nægja í bili .. vonandi verða fréttirnar bara góðar áfram ..

Knús og kossar kópavogsbúarnir...

-------------------------------------------

 

1.október 2005.

Litli strákurinn okkar er alger hetja .. þó hann sé bara 3 daga gamall þá er hann búin að reina meira en margur annar …

Í dag kom smá áfall þarsem það fór að myndast loft í brjóstholinu hjá honum .. en þarsem þetta er dugnaðar forkur þá stóða hans sig einsog hetja … allar rönkenmyndir hafa komið vel út og núna er hann með slöngu með sogi sem tekur þetta auka loft .. hann var soltið þreyttur þegar við kíktum á hann eftir öll átökin lá bara í fósturstellingu með þreytta svipinn hans pabba síns..

Við vorum svo að koma frá honum .. fengum að gefa honum .. ég er farin að mjólka fullt fyrir hann og nú er alveg að koma að því að það þurfi að fara að frysta þarsem hann á nú þegar hátt í viku byrgðir ..en einsog er þá drekkur hann (fær í gegnum sonduna) 1 millilíter á 4 tíma fresti…

Gaurinn opnaði augun aðeins í morgun .. augun eru soltið að fyllast af greftri og þarf að hreinsa það og áðan þegar við vorum hjá honum þá var hreinsað og litli kallin ákvað að kíkja á þetta skrítna fólk sem kallast mamma og pabbi…

Það er alger snilld hve mannalegur hann er .. hann varð meir að seigja enn mannalegri við það að opna augun ,.. (augað .. annað var enn lokað með greftri)..

Hann er með alveg yndislegar hvítar augabrúnir .. verður öruglega næsti jólasveinn í fjölskyldunni … tekur við af Deingsa afa… ;) .

Við erum alveg viss um að drengurinn hafi einhvað misskilið þetta með að fara í smalamennsku .. en við ætluðum að vera að smala um síðustu helgi þegar vatnið fór en veður og önnur öfl héldu okkur í bænum sem betur fer .. við erum voða dugleg að seigja honum að hann hafi einhvað misskilið þetta … hann hafi átt að mæta á næsta ári en ekki núna .. hehe .. en það verður greinilega nóg að gera hjá Berta Afa þegar allir gaurarnir mæta í smalamennsku að ári .. ef þessi gaur er með einhvað af fjallageita genum pabba síns þá held ég að við eigum eftir að eiga í fullu fangi með að halda aftur af Friðbert Helga frekar en hitt…

Núna eru tvær litlar gellur á aðalgjörgæslu vöku með Friðbert Helga og þarsem allar hjúkkurnar hans megin eru kvenkyns þá er ekki hægt að seigja annað en að hann vaði í kvenfólki ..

Jaja læt þetta nægja í bili .. knús og kossar.. Litla fjölskyldan á kópavogsbraut 18

------------------------------------------

 

30.sept 2005
Friðbert Helgi orðin 2 daga gamall…

Einsog er gengur allt einsog í sögu.. guttinn fékk stærri slöngu í öndunarvélina sína í dag þar sem slangan sem var sett fyrst var sú minnsta sem til var og þegar hún var að stíflast varð alltaf að skipta um þarsem ekki var hægt að soga úr henni .. en sú nýja er þannig að hægt er að hreinsa hana … eins var sett sonda .. hann var ómaður bæði höfuð og hjarta og allt leit vel út .. hjartað er fullkomið og eins höfuðið .. það er reyndar opin æð í hjartanu sem svona á venjulegum börnum æti að vera lokuð (það er ef þau fá fulla meðgöngu) en það er stefnt á að hann fái lyf við því á morgun .

Ég get nú ekki sagt annað en að ég hafi verið soldið hrædd í dag meðan verið var að skipta um slöngu hjá guttanum .. það er svo margt sem getur farið mis hjá litla krílinu.. Þegar við komum svo upp til hans eftir öll herlegheitin þá var hann alveg uppgefin … þá var maður soldið smeykur audda er það fyrsta sem manni dettur í hug að einhvað hafi misfarist … en svo fór drengurinn að sprikla og vá hvað maður var fegin að sjá það .. svo fékk ég að gefa honum 0.5 ml af brodd.. en það þykir rosalega gott að hann fái allt sem ég get gefið honum þarsem það er svo uppbyggjandi og eins er rosalega mikið af mótefnum í brjóstamjólkinni… Brjóstamjólk er reyndar mesta undur veraldar þarsem hún aðlagast hverju barni fyrir sig … t.d. er hún feitari og með meira af mótefnum þegar um fyrirbura er að ræða .. þarsem fyrirburar þurfa meiri stuðning en önnur börn…

Þetta kríli okkar er algert kraftaverk .. alveg sama hvernig við lítum á þetta … svo er bara að vona að draumurinn hennar Jennýar standist … Doksin sem uppgötvaði framfallið á naflastrengnum skilur ekki enn hvað það var sem varð til þess að hún henti mér í skoðun á því augnabliki sem hún gerði það á en án efa er það valdur þess að Friðbert Helgi er á lífi í dag … algert kraftaverk..

Þökkum allar kveðjurnar sem hafa komið í gestabókina .. það er yndisleg að sjá hve marga maður á að þegar eitthvað bjátar á …

Jaja við kveðjum í bili .. knús og kossar ..

-----------------------------------------------

 

29.september 2005
Litli drengurinn okkar er fæddur
hann fæddist stuttu eftir að síðasta færsla í litla líf var skrifuð..

Í gær var allt að ganga einsog í sögu.. Þegar doksanir komu stofuganginn var ákveðið að taka strok vegna furðulegs litar á legvatninu þá um nóttina.. ÉG var kölluð í skoðun og skellt uppá bekk.. þegar goggnum var stungið upp þá fann ég geggjað til .. hún leit upp og sá þá að naflastrengurinn var framafallin.. sem betur fer þá fann hún hjartslátt í naflastrengnum sem benti til þess að krílið væri allavega á lífi.. Það var strax kallað til helling af lækna liði .. annar læknir kíkti á mig og svo var hún bara með hendina þarna niðri haldandi við naflastrenginn á meðan hlaupið var með mig í bráðakeisara .. þau sögðu mér svona í fáum orðum að staðan væri ekki góð þarsem krílið væri ofboðslega lítið og að þau vissu ekki hvort það hefði fengið einhvern súrefnis skort… Það var alveg innilega hlaupið.. klesst á veggi og alles á leiðinni … það varð bara allt að gerast á sekonduni…

Ég var svæfð í snatri og ég vissi ekki meir fyrr en ég vakna og mér er sagt að ég eigi lítin strák.. Hafsteinn var svo komin til mín eftir smá .. vá hvað það var gott að hafa hann þarna .. stuttu seinna var honum samt boðið að fara og kíkja á drenginn okkar og gerði hann það .. einnig ákváðum við að hann fengi nafnið sitt strax og fór semsagt Hafsteinn uppá vöku til að skoða drenginn og seigja doksonum hvað hann héti… Meðan Hafsteinn var á vöku kom tengdamamma til mín … það var mjög gott að hafa einhvern þó ég geti ekki alveg sagt að ég hafi verið með fullum fimm .. vel upp dópuð af svæfingunni og stanslaust verið að dæla í mann lyfjum.. Þegar Hafsteinn kom niður hafði hann mynd með sér ….. mynd af honum Friðbert Helga …

Það var rosalega gott að fá að sjá mynd af prinsinum .. ótrúlegt hve fullkomin hann er þrátt fyrir smæð… hann semsagt er ca 30 cm.. það er ekki búið að mæla hann þarsem það er reynt að eiga sem minnt við hann . ..allt brölt getur haft slæm áhrif.. og svo var hann 586gr fæddur… hann mun örugglega léttast eitthvað til að byrja með einsog önnur ný fædd börn en við vonum bara að hann sínu staðfestu og þrjósku foreldrana og stækki sem mest..

Við fórum svo saman í gærkveldi og kíktum á drenginn okkar … mér var keyrt upp í rúminu þarsem ég er enn liggjandi eftir keisarann.. Vá hvað hann er fallegur .. við sáum strax að hann er sko með tærnar frá mér og hárið hans Hafsteins… Hafsteinn vill reyndar líka meina að hann hafi nefið frá mér en mér finnst líkamsbyggingin vera Hafsteins…. Ekki bjóst ég við að sjá eitthvað sem við gætum kannast við þarsem hann er svo ofboðslega lítill en það fór ekkert á milli mála að hann væri okkar … pínulítill en okkar alveg sama hvernig á það er litið.. Tengdamamma fékk svo að kíkja á fyrsta barnabarnið sitt og ég er ekki frá því að henni hafi brugðið svoldið .. þarsem guttinn er soltið lítill og hrár einsog doksanir seigja … en Ég held að þessi snáði geti bara ekki átt stoltari ömmur og Afa en hann á … og ekki er hann fátækur af ömmum og öfum… Ömmurnar og Afanir gáfu honum saman fyrstu fötin það var keypt það minnsta sem fannst semsagt stærð 40 .. gaman er að seigja frá því að guttinn kæmist allur í aðra skálmina á buxunum sínum … en hann á allavega föt.. vonandi fær hann að nota þau við tækifæri…

Staðan núna er að hver dagur verður tekin í einu …. Það þíðir ekkert að plana fram í tíman þarsem við vitum ekkert hvernig hlutirnir þróast.. í gær var smá vesen á að halda blóðþrístingnum í lagi hjá guttanum og jú hann var líkur pabba sínum og var alltaf að fikta í öndunar vélini… fyrstu tveir sólahringarnir eru verstir og geta sagt helling til um framvindu mála .. en einsog ég sagði hérna á undan þá er ekkert 100% ..

Nú er bara að krossa putta og vona það besta .. knús og kossar til ykkar allra … þökkum Allar góðu kveðjurnar og hlýhugin....

 

 

Gestabók
baby development

Lífið eftir missin
Frammhalds lífið

Ótrúlegt
en satt..

Litla systirinn.

Litli voffin.

Meðganga eftir missi